Miðvikudagur, 6. febrúar 2008
Stúdentakosningar í dag
Það standa yfir kosningar til stúdentaráðs upp í Háskóla Íslands og þó ég sé ekki sérstök áhugamanneskja um nemendakosningar þá verð ég að segja að mér finnst eitt helsta baráttumál Vöku í besta falli kjánalegt. En það gengur út á að tryggja það að stúdentaráð tjái sig ekki um mál sem ekki snúa algjörlega beint að hagsmunum stúdenta. Þau vilja sem sagt láta kjósa sig inn með þeim formerkjum að þau megi eingöngu tjá sig um afmarkaða þætti samfélagsins.
Mér skilst að þessi nýja stefna stafi af óttanum sem reyndar báðar fylkingar hafa barist við síðustu ár en hún er að einhver átti sig á því að þær eiga laustengda hugmyndafræði með vinstri og hægri flokkunum. Það þykir víst hreinasta skömm og margítrekað hef ég heyrt liðsmenn beggja fylkinga telja mér trú um að þau séu ekki flokkatengd - sem má vel vera sannleikurinn, en það er samt sem áður ótrúleg fylgni á milli þess að liðsmenn Röskvu sæki á félagshyggjuarm stjórnmálanna - ekki skrítið í ljósi þess að Röskva kennir sig við félagshyggju.
Vaka hefur hins vegar alltaf teygt sig til hægri en síðustu árin hefur fylkingin danglað vinstra megin við miðju, en sama fylgni hefur einkennt forystumenn Vöku þ.e. þau enda flest hjá íhaldinu.
Hvað sem þessu öllu líður, þá held ég að það sé afar óráðið að takmarka tjáningarfrelsi kjörinna fulltrúa og kannski sérstaklega stúdenta. Enda stúdentar oft í gegnum söguna sett mark sitt á alskyns deilumál í samfélaginu. Enda er það þeirra sem fara fyrir hönd stúdenta að láta rödd stúdenta heyrast því það er jú ,,framtíðin" sem heldur sig upp í háskóla sem verður varla mótandi fyrir samfélagið ef hún ætlar að þegja þunnu hljóði þó samfélagið fari á hvolf. Enda hver segir að hagsmunir stúdenta séu ekki almennir hagsmunir íbúa þessa lands? Eða búa stúdentar kannski í einangraðir í sér hagkerfi og samfélagi!
Ef kjörnir fulltrúar í stúdentaráð eru hræddir um að fara gegn ,,almenningsáliti" skólans gætu þau haldið fleiri fundi með nemendum og rætt hlutina áður en þau fara af stað með yfirlýsingar. Það ætti að lífga upp á lýðræðislega og upplýsta umræðu í skólanum sem mætti alveg við áköfum stúdentum að ræða stjórnmál. Þannig er getur stúdentaráð haft betur ,,puttana á púlsinum".
Eiga annars stúdentar ekki að mótmæla verðhækkunum? berjast gegn ofbeldi í miðbænum, að viðhalda lengri opnunartíma skemmtistaðanna?, berjast fyrir lækkun vaxta, betri atvinnutækifæra, ??
...eða er opnunartíminn á Þjóðarbókhlöðunni og námslánin einu málin sem skipta stúdenta máli!
Bara á síðustu árum man ég eftir tveim málum þar sem stúdentar gegndu lykilhlutverki, við mótmælin á þátttöku Íslands í innrásinni í Írak og þegar þáverandi forseti Kína Jeng Zemin kom til landsins og Falun gong liðar voru handteknir til að verða ekki ,,sjónmengun" fyrir forsetann sem ber ábyrgð á fjölda mannréttindabrota þar í landi.
Praktískari mál má svo telja uppbyggingu á Vatnsmýrasvæðinu, sem Vaka telur sennilega ekki snerta hagsmuni stúdenta eða hvað? Þar væri kjörið tækifæri fyrir stúdenta að berjast fyrir fleiri stúdentaíbúðum.. en hver veit hvar vökuliðar ætla að draga mörkin í því að takmarka sjálfan sig í því að hafa áhrif á samfélag sitt í þágu stúdenta!
Það mun vera nokkuð ljóst að ég kýs Röskvu sem ætlar að þora að stjórna og hafa skoðanir um leið
- enda þau félagshyggjuaflið í skólanum og það er minn tebolli.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:40 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 296964
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


Athugasemdir
Hvað ungur nemur gamall temur ...
Er það ekki þannig með "hægri" hugsjónina að hún er alltaf frekar takmörkuð og einstrengingsleg í flesta staði.
Gísli Hjálmar , 6.2.2008 kl. 11:30
Brava Bryndís, hárrétt hjá þér. Þetta "ópólitíska japl" meðal stúdentahreyfinga er í besta falli hlægilegt og í raun móðgun við baráttu stúdenta fyrir mannréttindum og farmförum í mannkynssögunni. Auðvitað eiga stúdentar og fulltrúar þeirra að hafa skoðanir og sjálfsagt að þeir og stofnanir þeirra taki þátt í pólitískri umræðu.
Vaka var ekki alltaf svona "ópólitísk". Þessi "ópólitíska" plága kom fyrst inn í stúdentahreyfinguna frá framsóknarmönnunum sem stofnuðu Félag Umbótasinnaðra Stúdenta fyrir nær 30 árum. Þegar það félag var dautt vegna pólitísks sinnuleysis félaga þeirra og klofnings (sjá t.d. þetta), þá sá Vaka sér leik á borði að taka upp þetta "ópólitíska" bull til að fela óvinsælar hægriskoðanir sínar. Ég get tekið tvö dæmi um fáránleika þessa. Við vinstrimenn bárum upp ályktunartillögu á stúdentaráðsfundi árið 1988 þess efnis að Stúdentaráð Háskóla Íslands (SHÍ) lýsti yfir stuðningi við baráttu stúdentasamtaka ANC gegn Apartheid stjórninni í Suður Afríku. Þáverandi formaður SHÍ, Sveinn Helgi Sveinsson, bar þegar upp frávísunartillögu (sem á endanum var samþykkt 16-14) þar sem þetta væri mál sem kæmi stúdentum á Íslandi ekkert við! Eftir hávaðarifrildi mín og Sveins Andra á fundinum lét Sveinn m.a.s. bóka að það kæmi ekki til greina að styðja við bakið á hryðjuverkasamtökunum ANC! Annað dæmi um þennan fáránleika var þegar Röskvuliðar í SHÍ báru upp tillögu um að ráðið tæki á móti fulltrúum stúdenta frá Tékkóslóvakíu, sem voru framarlega í baráttunni gegn einræðisstjórn kommúnista, og lýstu yfir stuðningi við lýðræðisbaráttu þeirra. Þessu vísaði meirihluti Vöku líka frá og það kom því í hlut Röskvu að bjarga mannorði íslenskra stúdenta og taka á móti Tékkóslóvökunum. Til að toppa þetta svo var SHÍ ein af fáum samtökum stúdenta í heiminum sem ekki mótmæltu fjöldamorðum kínverskra stjórnvalda á stúdentum 1989.
Ungt fólk á að vera róttæk samviska samfélagsins. Það er því fáránlegt að samtök stúdenta útiloki mál sem fjalli ekki um "bein" hagsmunamál þeirra. Slíkt gerir ekkert annað en að senda dapurleg skilaboð til æsku landsins um að vera ekki að ibba sig um eitthvað sem þeim "kemur ekki við".
Guðmundur Auðunsson, 6.2.2008 kl. 14:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.